þegar þú sérð horn og hala þá er voðin vís....

Bumbulína:D

21.12.2008 23:36:10 / pukaskott

Jólaaa,jólajóla,jólaa,jólajóla....

Góða kvöldið gott fólk....

Já það eru einungis 3 dagar í jól...djís hvað tíminn er fljótur að líða!8|
Ég á nú ekki eftir að gera svo mikið fyrir jól, þrífa húsið og pakka inn jólagjöfum...þar er allt og sumt!

Nú ég er með stór glæsilegar fréttir....baðið er tilbúið...næstum....það á eftir að mála loftið, gluggan og setja upp ljós:haha:
Þannig ég get vígt sturtuna annað kvöld:D

Það er nú ekkert annað í fréttum svo sem....ég var nú búin að setja það inná barnalandssíðuna en get svo sem sett það hér líka.....stelpan er búin að skorða sig, svo það má búast við öllu svo sem.....ég satt að segja vona að hún komi ekki fyrr en í janúar...ég myndi segja 3.jan væri flott:haha:  Fín ammlisgjöf handa Silju minni:haha:
En eins og ég segji alltaf þá kemur hún bara þegar hún er tilbúin:!:;)

Nenni ekki að finna eitthvað meira bull til að segja.....minni á barnalandssíðuna....ef linkurinn virkar ekki þá heitir síðan "Ófædd Evu og Atladóttir"
Þangað til næst....ADIOS

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.12.2008 00:39:02 / pukaskott

Jæja, þá er boltinn farinn að rúlla

Góða kvöldið gott fólk....

Já nú er boltinn farinn að rúlla....Gylfi (tengdapabbi) kom í kvöld og kláraði að gera á baðinu það sem átti eftir að gera svo hægt væri að byrja að flísa.  Hann var so duglegur að hann skellti upp fyrir mig ljósunum, þannig það er komin flott lýsing í húsið.  Og blaðagrindinni minni fínu...

Nú það var tekin sú ákvörðun að fá mann í að flísa...Bjössi frændi snillingur reddaði okkur manni á góðum díl....og flísarinn kemur á morgun:haha: jeij....
Mér skilst að hann eigi ekki eftir að gera þetta á mörgum dögum.  Það er vonandi að það verði hægt að taka baðherbergið í fulla notkun um helgina:)  Ég krossa bara fingur:!:

Það er nánast allt tilbúið fyrir skvísuna....fötin eru hrein, og settið inn í rúmið er komið...þannig það er bara að fá dýnuna og græja rúmið að fullu.  Svo er bara að kaupa bleyjur og þurrkur og þá er bara allt tilbúið.  Þá vantar bara skvísuna í heiminn....
Ég fór í skoðun í seinustu viku, og þá var hún ekki búin að skorða sig.  En nú er kúlan búin að síga þvílíkt bara á einni viku...alveg ótrúlegt:d  Ég fer svo aftur í skoðun núna á miðvikudaginn, og það er bara spennadi að sjá hvað kemur út úr því:d

Það sem er að frétta af hlunkunum okkar er það að þeir fóru til dýra á þriðjudaginn fyrir viku.  Ástæðan fyrir því er sú að við ákváðum að drífa í því að láta gelda þá.  Það er víst algengt að karlpeningurinn eigi erfitt með að samþykkja slíka aðgerð á rökkum, en eitthvað varð til þess að Atli minn samþykkti að láta gelda þá.
Þeir eru allir að koma til, eru samt búnir að vera pínu skrítnir....Lúsifer er búinn að vera algjört sófadýr, liggur bara eins og klessa og sefur, og Dímon er svipaður en hefur sóst eftir miklu kúri og keleríi.  Þeir eru svolítið litlir í sér, en eru nú að verða brattari.  Það er frekar erfitt fyrir þá að fá ekki að hreyfa sig eins og þeir vilja og þurfa.
Það er nú að styttast í það að þeir megi fara að sprikla almennilega:d  Sem er mjög gott bæði þeirra og okkar vegna;)

Mig langar að minna fólk á barnalandssíðuna, hún er læst en það er vísbending á síðunni.  Það reyndar koma 2 svör til greina..en þið ættuð nú að átta ykkur á því strax.....orðið er skrifað með litlum stöfum og er með íslenskum stöfum líka!
Og muna að kvitta í gestabókina:!:

En ætla ekki að hafa það lengra.....þangað til næst...ADIOS

» 0 hafa sagt sína skoðun

12.12.2008 15:28:42 / pukaskott

Ný síða

Góðan daginn gott fólk....

Já það er komin ný síða, hún Vala vinkona mín er snillingur í þessu.

http://barnaland.is/barn/82809/

Þetta er síða litlu músarinnar minnar...það er nú ekki mikið inná henni enn sem komið er en héðan í frá fara allar bumbumyndir þarna inn, og fréttir af okkur mæðgum!  Ég ákvað að hafa síðuna læsta, svo ef þið vitið ekki svarið þá bara sendiði póst.  En ég skal gefa ykkur aðeins meiri vísbendingu...Atli fékk 2 nickname þegar hann var yngri, lykilorðið er það sem hann er hvað þekktastur fyrir:D

Þangað til næst....ADIOS


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.12.2008 00:15:53 / pukaskott

Ég er óstöðvandi

Góða kvöldið gott fólk....

Já ég er sko óstöðvandi.....ég gær skutlaði ég Atla í vinnuna svo ég kæmist með honum á jólahlaðborð seinna um kvöldið. 
Bíllinn var svo skítugur að ég sá varla út....þannig mín skellti sér bara á bílaþvottastöð og þreif drossíuna.
Dreif mig svo heim og henti fullt af drasli í bílinn úr bílskúrnum, og fór með það á sorpu.

Nú það er ekki mikið eftir að gera svo að allt sé tilbúið fyrir skvísuna.  Á morgun ætla ég að fara til múttu og þvo barnafötin.  Og vonandi fæ ég kommóðuna heim á morgun.
Þá vantar bara dýnuna í rúmið og flotta bedding settið´(sem ég þarf reyndar að þvo) sem pabbi og Guðrún eru að gefa okkur, þetta tvennt kemur vonandi í vikuni og þá er allt tilbúið:haha:

Nú Jói ætlar að koma á mánudaginn og skella kvoðunni á veggina, og þá ætti að vera hægt að byrja að flísa í vikuni...sem væri nottla bara draumur:D 

Sú stuttu stækkar og stækkar og ég finn alltaf meira og meira fyrir plássleysinu hennar.  Mig er bara farið að hlakka til að fá hana í hendurnar....það eru bara 5 vikur eftir8|  það er svo stutt....

En jæja, ég ætla ekki að hafa það lengra...
Þangað til næst...:ADIOS


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.12.2008 23:25:49 / pukaskott

Dugnaður í fólki:D

Góða kvöldið gott fólk....

Já það er sko dugnaður í mönnum í dag......
Það hefur sko bara hellingur gerst síðan á mánudaginn....ég er búin að vera að meira og minna að dúllast í heimilinu.

Stofan er næstum tilbúin...á bara eftir að klára að þrífa og jólaskreyta..og ganga frá smotterís dóti.
"Litla herbergið" er að verða að skrifstofu og fataherbergi....Atli fór í gær í IKEA og keypti hillur sem voru svo settar upp áðan.  Það er að færast betri mynd á það....svo varð ég svo spennt eitthvað að ég setti saman kerruna og vagninn...þannig það er allt reddý.

Nú Jói kom í gær og sparslaði og grunnaði baðið, þannig næsta skref er að setja vatnverjandi kvoðu og þá er hægt að byrja að flísa....vona að það verði gert á næstu dögum:!:

Það er nóg að gera og fullt búið.....þetta er allt að smella saman.....um helgina ætla ég svo að þvo fötin og ganga frá þeim.....
Settið í rúmið fór í póst í dag frá USA þannig það ætti að koma í vikuni eða eftir helgi:haha:

Oh ég er svo hamingjusöm hvað allt er að smella saman og allt gengur vel!

Annas er annað lítið að frétta.  Jú hlunkarnir okkar eru að fara til læknisins í næstu viku að láta taka kúlurnar.  Við ákvaðum að láta drífa í þessu...þar sem ég er nú í fríi og get verið með þeim allan daginn á meðan þeir jafna sig.  Verð þó að viðukenna, að ég er smá kvíðin...að fara með þá og hjálpa til við að deyfa þá...það verður ábyggilega pínu erfitt að sjá þá verða máttlausa.....eða kannski er það bara ég og mín hormón:D hehe

En ætla að ekki að eyða fleiri orðum í vitleysu.....þangað til næst...ADIOS

ps. þið sem skoðið megið endilega kvitta í gestabókina eða commenta...það er gaman að sjá hverjir eru að fylgjast með manni:D

» 2 hafa sagt sína skoðun

02.12.2008 00:55:42 / pukaskott

Checklist!

Góða kvöldið gott fólk......

Já fyrir nokkru skrifaði ég niður gátlista yfir allt sem á að vera búið fyrir jól.....þetta var ekki svo langur listi en þó aðeins.....

Og í dag/kvöld var hægt að strika yfir alveg slatta á honum.....:haha:

Svana systir kom í dag og við byrjuðum að gera allskona...aðallega hún samt, hún var svo yndisleg að þrífa fyrir mig veggina (ég væri enþá að þrífa þá ef ég hefði gert það sjálf!), og eru þeir sem nýjir....Ég var meira svona í að dúlla mér að gera eitthvað:$:lol:  Og við fórum að versla eilítinn mat í búið!  Og byrjuðum á þeim tilfæringum sem við réðum við.

Svo komu mamma og Atli heim og þá var alveg fullt sem gerðist......Við hjálðuðumst öll að að taka svefnsófann í sundur svo hægt væri að henda honum út, svo kom Summi og hjálpaði Atla að henda honum út í bílskúr.  Nú það voru fullt af fleiri tilfærinugum sem ég ætla nú ekkert að telja upp sérstaklega. 
Svana, mamma og Atli hjálpuðust að við að setja upp barnarúmið og skiptiborðið, það gekk hálf brösulega (það voru engar leiðbeiningar) en gekk þó að lokum:lol:

Við erum nú komin með skrifstofu/fataherbergi...."litla herbergið" fékk make over...en það á samt eftir að setja upp hillur (sem ég á eftir að kaup) og þá er það orðið nokkuð fullkomið:haha:

Hann Jói okkar ætlar svo að koma á morgun (í dag) og byrja á baðinu...svo það er allt að smella saman.....

Ætla svo að ná í jólaskrautið út í bílskúr á morgun og byrja að jólaskreyta í vikuni...oh mig hakkar svo til:haha:

En allavega.....varð aðeins að monta mig hvað allir voru duglegir í dag að hjálpast að við að gera allt sem var gert...
Mig langar að þakka mömmu og Svönu kærlega fyrir hjálpina..án þeirra hefði þetta aldrei gerst svo hratt:haha:  knús og kossar

Við skvísan stækkum bara, og ég er orðin ansi þreytt...sérstaklega núna eftir allt saman.

En ég ætla ekki að hafa það lengra...þangað til næst....Adios

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.11.2008 22:39:04 / pukaskott

Mikið að gera á næstunni!

Góða kvöldið gott fólk....

Við Atli fórum í fyrsta tímann í foreldrafræðslu á mánudaginn.  Við lærðum allt um fæðinguna, og ég held að Atli hafi séð og heyrt meira á einum klukkutíma en honum hafi langað.  Svo fengum við að sjá fæðingardeildina.  Þetta var mjög gaman, en líka soltið scary....á þann hátt að það er ógeðslega stutt þangað til krílið fæðist og mér kvíður aðeins meira fyrir fæðingunni!  Við förum svo í næsta tíma á morgun.

Næstu helgi verður frekar skemmtileg, síðasti dagurinn minn í vinnuni er á laugardaginn, og förum við svo beint á Selfoss að hitta föðurfjölskylduna hans Atla.  Gistum yfir nótt og förum á jólahlaðborð:)  Bara nice!

Helgina þar á eftir er svo á dagskrá að fá múttu og systir mína til að koma og hjálpa mér að þrífa.  Þá verður sko jólahreingerningin og jólaskreytt:haha:  Get ekki beðið eftir því....og þá verður líka rýmt fyrir nokkrum húsgögnum fyrir litlu prinsessuna mína, sem styttist óðum í.  Hefði líka viljað taka bílskúrinn í gegn..ekki veitir af, það er ógó mikið drasl í honum!

Svo ætla ég að fara að dunda mér við að þvo föt og strauja og svo má nottla ekki gleyma jólabakstrinum.
Jújú ég ætla að baka smá fyrir jólin, kannski 2-3 sortir:haha:  Ég er svo myndó....verð líka að æfa mig fyrir barnaammlin:haha:

Alla vega þá gengur allt bara vel, hef reyndar ekki stækkað mikið,en bumban er farin að síga örlítið, er líka orðin soltið þreytt....grindin og bakið oft að drepa mig en maður lætur sig hafa það! 

Jæja, ætla ekki að hafa þetta mikið lengra...þangað til næst...ADIOS


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.11.2008 00:49:21 / pukaskott

Höfuð, herðar hné og tær....

Góða kvöldið gott fólk....

Já það er orðið ansi langt síðan ég bloggaði seinast....hef ekki verið í miklu ritstuði upp á síðkastið.

Það hefur svo sem ekki mikið gerst síðan síðast....jú ég átti ammli 14.nóvember...en það eru nú so sem engar fréttir:!:

Bumban stækkar bara og stækkar, og ég passa orðið í voðalega lítið...ég er farin að stel fötum af Atla til að vera í:$8|  Skvísan stækkar víst líka, og hreyfingarnar verða alltaf skrítnari og skrítnari, og jafnvel óþægilegar stundum.
Ég tók eftir því áðan, að ég er farin að finna fyrir útlimum á hliðinni...hún er farin að færa út kvíarnar stelpan.  Ég áttaði mig líka á því áðan að ég get fundið hvort hún sé að glenna rassinum framan í mig eða hvort hún sé bara að gefa mér five:haha:hehe frekar fyndið en skrítið á saman tíma.
Atli fann í fyrsta skiptið áðan hreyfingu, skvísan hefur ekki verið mikið fyrir að leyfa fólki að finna....um leið og hendi snertir mallann þá hættir hún að hreyfa sig, ég hef verið heppin í þau skipti sem ég hef fundið.
Þannig við erum bara farin að pota í bumbuna til að fá að finna, því potar bara til baka...hehe

Vá ég er farin að tala í hringi...búin að gleyma hvað ég er búin að skrifa....

Ætla ekki að hafa þetta mikið lengra....held að það sé best að ég fari bara að halla mér, þar sem ég er að fara að vinna á morgun!

Þangað til næst...ADIOS

» 1 hafa sagt sína skoðun

21.10.2008 17:16:19 / pukaskott

Ég er svo myndarleg!

Góðan daginn gott fólk....

Það er allt gott að frétta af okkur, skvísan srækkar og stækkar og ég þyngist bara og stækka:$

Þetta ástand hefur haft þvílíkt furðuleg áhrif á mig....mér er búið að langa lengi að baka, og ákvað að láta verða af því í gær.  Fór út í búð að versla í matinn og ákvað að kaupa það litla sem mig vantaði uup á til að láta verða af því að baka.

Ég bakaði kanilsnúða og skinkuhorn, ógó dugleg.  Svo komu mamma, óli pabbi, Hjörtur og Eva Mjöll í heimsókn og ég þurfti alveg að hvæsa á þau svo það yrði eitthvað eftir.

En ég var líka fljót að setja í frystinn þannig það var ekki hægt að borða það:haha:

EN hvað um það....ég hef ekki mikið meira að segja...ekki mikið að gerast hjá mér þessa dagana!

Þangað til næst...ADIOS

» 2 hafa sagt sína skoðun

17.10.2008 18:11:40 / pukaskott

Stelpa eða Strákur?

Góðan daginn gott fólk....

Já við fórum í sónarinn á þriðjudaginn...loksins eftir langa bið!
Krílið var ekki mikið fyrir að vera í sviðsljósinu, faldi sig bara bakvið kökuna og setti bara hendur fyrir andlitið.  Stríddi okkur mjög mikið...það var bara fyndið að sjá það.

Við fengum þó að sjá aðeins framan í krúttið og er það ekkert ólíkt mér þegar ég fæddist:haha:  Við fengum nokkrar góðar myndir og alveg yndislega krúttlegt myndband þar sem krílið er að geyspa og brosir svo fallega til okkar eftir á.  Mamma og Óli pabbi og svo mamma hans Atla fengu að koma með og sögðu þau að þetta hafi verið skemmtilegasta bíó sem þau höfðu farið :haha:

Núna hlakkar mig enþá meira til að fá krúttið í fangið, þegar mar er búinn að sjá hvernig það lítur út.  Og nú vitum við kynið þannig það er hægt að vinna soltið undirbúninginn út frá því, með herbergið og sollis;)

Nú huxa eflaust einhverjir hvort ég ætli ekki að fara að æla kyninu út úr mér........Jú það er lítl prinsessa á leiðinni, sem er alleg eins og mamma sín:haha: *spenningur í maganum*

Takk þið sem commentuðu, það gleður mitt litla hjarta alveg óskaplega að sjá hverjir eru að fylgjast með.

En ætla ekki að hafa það lengra, fer að fara að fara í fjölskyldumatarboð hjá múttu og óla pabba:haha: mmmm veit ekkert hvað ég fæ í matinn en mig hlakkar ýkt til....er svo svöööng:haha:

Þangað til næst.....ADIOS
Girlpower:D

» 0 hafa sagt sína skoðun

12.10.2008 22:14:28 / pukaskott

Gleði gleði gleði

Góða kvöldið gott fólk....

Já það er eintóm gleði í gangi....

Guðmunda og Bjarki vinir okkar eignuðust stelpu í dag.  Hún var sett í dag, svo skvísan kom alveg á tíma:haha:  Innilega til hamingju með það:haha:

Við Atli fórum í matarboð til Lindu frænku minnar og Haffa mannsins hennar, fengum rosa góða kjúklingarétti.  Vorum reyndar ekki legni að því Atli þurfti að fara að vinna klukkan 12, en næst verður matur hjá okkur...þá er aldrei að vita nema kallinn verði í fríi og taki þau með sér á almennilegt dajmm;)

Nú fer hver að verða síðastur að segja sítt, hvort við erum með stelpu eða strák....við erum nebbla að fara í sónarinn ekki á morgun heldur hinn....og mig hlakkar svooo til!

Það er nú samt ikki eins og fólk sé búið að vera iðið við að segja sínar skoðanir um þetta mál eða nokkuuð annað sem ég hef ritað...er ekki alveg nógu sátt með ykkur gott fólk:$...miðað við fjölda skoðanna á hverjum degi, og ekki eitt comment...þá bíst ég svo sem ekki við miklu!:s

Hef það ekki lengra....þangað til næst...ADIOS



» 5 hafa sagt sína skoðun

01.10.2008 12:47:32 / pukaskott

Langri og erfiðri helgi lokið

Góðan daginn gott fólk....

Já þetta er búið að vera löng og erfið vika.  Við fengum slæmar fréttir á mánudaginn, amma hans Atla sofnaði svefninum langa.  Sem er mjög sorlegt en á sama tíma í raun svolítill léttir.  Hún var orðin mjög veik.  Það er alltaf erfitt að missa ástvin, en það sem hálpar manni í gegnum sorgarferlið er hugsunin að nú er hún komin á betri stað, og líður vel með manni sínum sem lést fyrir 5 árum.  Einnig sú huxun að nú þarf hún ekki að kveljast meira.
Við kvöddum hana öll á spítalanum og var leit hún mjög vel út, og var svo mikill friður yfir henni. 
Jarðaförin var á laugardaginn og var það mjög svo falleg athöfn.  Farið var eftir öllum hennar óskum, hennar uppáhalds lög voru spiluð,  eitt lag stóð upp úr en hún og maður hennar héldu mikið upp á það saman, og var það My way með Frank Sinatra...þegar það lag var spilað gat ég ekki annað en brosað því ég sá bara þau hjónin fyrir mér í hvítu klæðunum að dansa saman.

Konan sem ég kynntist fyrir 2 árum var yndisleg og ljúf, skemmtileg og fyndin.  Því miður hvarf sú kona smátt og smátt í hendur erfiðs sjúkdóms, Alzheimers.  Sem betur fer eiginlega fékk hún að kveðja áður en sá sjúkdómur hafði náð algjörum tökum á henni.  Því þetta er svo vondur sjúkdómur, bæði fyrir aðstandendur og einstaklinginn sjálfann.

Megi amma Begga hvíla í friði.


En úr sorginni í gleðina....

Hann Atli minn varð 24 ára á fimmtudaginn (25. sept):haha: Gamli kallinn....

Nú krílið stækkar og stækkar, þar að leiðandi ég líka:haha:  Það eru komnar 25 vikur og 6 dagar, sem þýðir að það eru 14 vikur og 1 dagur eftir:haha:  Þetta syttist.  Og talandi um að styttast þá eru bara 13 dagar þangað til við förum í þrívíddarsónarinn og mig hlakkar svooo til að ég get ekki beðið.  Var í skoðun í morgun og lítur allt vel út, fékk reyndar vægt sjokk þegar ég steig á vigtina...sá tölu sem ég hélt ég myndi aldrei sjá..(hafði ekki huxað út í það hvað mar þyngdist þegar mar yrði óléttur).

Ég er að spá í að fara að opna veðbanka, um hvort kynið þetta er.  Tek við frjálsum framlögum...bankinn verður opinn þangað til krílið kemur í heiminn!:d

Hvað húsið varðar, eins og flestir vita þá erum við bara búin að eiga klósett síðan við fluttum inn. Vonandi fer það að fara í gang, held að stefnan sé tekin á október.  Svo á að reyna að græja þvottahúsið handa mér líka.  Og svo er það bílskúrinn og hunda/barnaherbergið í gegn.  Það er nóg að gera áður en krúttið kemur;) Það er bara vonandi að það verði að mestu búið áður en það kemur8|

En jæja held þetta sé komið gott....
Þangað til næst...ADIOS

ps. ég set alltaf bumbumyndir í hverri viku, og eru þær inná Facebook og Myspace.  Þeir sem ekki eru með það getiði farið inn á www.123.is/atli

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.09.2008 19:05:55 / pukaskott

Það styttist.....

Góða kvöldið gott fólk...

Já það styttist í krílið....nú eru komnar 24 vikur og 1 dagur...sem þýðir að aðeins 15 vikur og 6 dagar eru eftir:haha:  Mér er farið að hlakka frekar mikið til að fá músina í fangið:haha:

Og það styttist að við förum í skoðun og þrívíddarsónar...get ekki beðið eftir að fara í þrívíddarsónarinn...er svooooo spennt!  Vona að við sjáum kynið en ef ekki þá verður það bara að vera....ég verð ekkert svekkt þótt það komi ekki.  Svo lengi sem allt er eðlilegt þá er ég sátt;) (það er reyndar ekkert greint í 3dinu).

En hvað um það..það er bara allt gott að frétta af okkur í kotinu.  Atli er byrjaður að vinna hjá DV og er ýkt ánægður.  Hann var reyndar að vinna á seinni vakt alla vikuna þannig ég hef haft kofann út af fyrir mig og pjakkana....hefur samt ekki verið neitt svaka spes þar sem ég er búin að vera að vinna meira og minna alla vikuna:!::s

Veit ekki alveg hvað ég að bulla meira...það eru komnar 2 nýjar myndir á netið.

Þangað til næst....ADIOS

» 0 hafa sagt sína skoðun

11.09.2008 21:54:15 / pukaskott

Allt komið á fullt...

Góða kvöldið gott fólk....

Já nei það er ekkert að gerast í húsinu enþá...það kemur vonandi fljótlega....
Ég er byrjuð að vinna aftur, tók 4 MJÖÖÖÖÖÖG erfiða daga í röð, og var að vinna í gær og er að vinna núna...ýkt dúleg...5:30-9:30 og svo 13:00-02:00.8|

Annas er bara allt gott að frétta, krílið stækkar og stækkar, og eins og fólk getur séð á myndum sem eru komnar á netið að þá eru miklar stækkanir í gangi.  Er komin 23 vikur í dag:haha:  Þetta styttist...bara 3 mánuðir og 1 vika eftir.:)

Myndirnar eru á facebook og myspace...og svo er ég svo góð að fyrir þá sem ekki eru með það getiði séð myndir á www.123.is/atli

Hef það ekki lengra...þarf að halda áfram að vinna...
Þangað til næst...ADIOS

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.09.2008 17:10:35 / pukaskott

Sumarfríið senn á enda!!

Góðan daginn gott fólk...

Það er orðið svolítið langt síðan ég bloggaði seinast....búin er vera frekar löt!
En nú er sumarfríið mitt alveg að verða búið...eða það er reyndar búið en ég er svo sniðug að nota tíma sem ég átti inni og gat því lengt það aðeins:haha:
Ég byrja að vinna á fimmtudaginn...kl.05:30 :$

Það er eitt sem mér finnst soltið fúlt...ég er að koma úr sumarfríi og byrja strax að vinna 4 daga í röð:s  Ég veit það er bara eðlilegt að vinna 4-6 daga í röð...en ég vinn eftir vaktarkerfi og þegar maður er vanur solis þá er hitt viðbrigði.....sérstaklega þegar mar er að koma úr sumarfríi....en ég er bara að röfla eitthvað sem enginn skilur...blablabla

Allavega... þá er allt gott að frétta af okkur bumbunni...við stækkum bara.  Það er magnað að sjá hvað maður stækkar á einni viku....þið sem eruð búin að skoða myndirnar  þá ættuð þið að sjá muninn á 20 og 21 viku.  Nú er ég alveg að verða komin 22 vikur og þá kemur önnur mynd:haha:

Við fórum í skoðun á miðvikudaginn...og bað ég ljósu um að gera annan sónar...þar sem ég var svo óánægð með 20v sónarinn minn.  Hún er reyndar ekki þjálfuð í þessu og var þá meira svona að leika sér.....en hún sagði mér þó meira en læknirinn.
Og þar sem Atli er svo forvitinn að vita kynið þá gat hann ekki setið á sér og spurði hvort hún sæi eitthvað...og jú hún hélt hún sæi nú eitthvað...en það var akkúrat öfugt við það sem læknirinn sagði......
Þar sem ég veit ekki hvort allir vilji vita þá verður fólk bara að kommenta inná og láta mig vita hvort ég eigi að uppljóstra eða ekki!!!  Við höfum ekki fengið neina staðfestingu hvort kynið það er þá er nú svo sem ekkert að segja.  Læknirinn sagðist halda að þetta væri stelpa (annas vissi hann það ekki) en ljósan sagðist halda að þetta væri strákur (nema þetta hafi verið naflastrengurinn sem lá þarna)...allt svo óljóst

En við erum að fara í þrívíddarsónar 14. október (sem ég er örugglega búinn nefna hér skrilljón sinnum) og þá vonandi fáum við að vita eitthvað meira....annas er ég farin að halda að við eigum bara ekkert að vita!!!:!:8|

En hvað um það...þá hef ég ekkert meira að babbla um...
Þangað til næst....ADIOS

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Leitarbox

Heimsóknir
Í dag:  3  Alls: 19378
Dagsetning
23. febrúar 2012
Klukkan
Könnun
Verður það....
Stelpa
12 atkvæði

Strákur
7 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 19
RSS tengill
Ýmsar spennandi síður
Aðalstaðirnir
Myndasíður